16.05.1929
Efri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2403 í B-deild Alþingistíðinda. (1106)
47. mál, kosningar til Alþingis
Forseti (GÓ):
Hv. 4. landsk. hefði getað slept að minnast á það, þó málið væri nú tekið fyrst til umr. þeirra mála, er á dagskrá stóðu. Fyrir 2 dögum tók jeg það út af dagskrá að beiðni hans og í gær að beiðni annars hv. þm. Og hjelt jeg, að þegar jeg er búinn að taka frv. tvisvar út af dagskrá, væri mjer heimilt að neyta þeirrar venju, er myndast hefir, og taka það til umr. áður en að því kom samkv. dagskránni.