21.03.1929
Efri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2470 í B-deild Alþingistíðinda. (1138)
13. mál, hafnargerð á Skagaströnd
Jón Jónsson:
Hv. frsm. sjútvn. var sammála mjer um það, að í framtíðinni mundi höfn á Skagaströnd fremur verða fyrir fiskiveiðar en verslun. En mjer fanst ályktun hans af því nokkuð einkennileg. Hann vildi með því rjettlæta lækkun ríkisstyrksins. En mjer finst mín ályktun af því rjettari, sú, að ríkinu bæri að leggja meira til, vegna þess að með því að verða fiskihöfn kemur hún fleirum að notum og höfnin verður fyrir það meira landsmál en hjeraðsmál. Frá mínu sjónarmiði sjeð er því sanngjarnt, að ríkið leggi meira til þess vegna.
Þá vildi hv. frsm. draga það út úr orðum mínum, er jeg gat þess, að þótt ábyrgð ríkisins fyrir lántöku væri lækkuð, mundi sýslan geta fengið lán á sitt nafn eingöngu, eða fyrirtækið út á ábyrgð sýslunnar, að jeg teldi fyrirtækið arðvænlegt. En þetta er röng ályktun. Í þeim ummælum mínum fólst vitanlega engin umsögn um arðvænleik hafnargerðarinnar. Jeg vona, að Húnavatnssýsla sje ekki svo illa stödd, að hún geti ekki útvegað lán á nafn sitt, ef kapp er á lagt. Þetta sannar því ekkert um höfnina, heldur, ef nokkuð væri, um lánstraust sýslunnar. En jeg vil þó ekki neita því, að jeg vona, að fyrirtæki þetta geti orðið arðvænlegt þegar fram líða stundir. En það tekur sinn tíma. Og þeir tímar geta orðið erfiðir fyrir hafnargerðina. Jeg býst líka við, að sýslan verði fremur hikandi, ef henni er gert að leggja mikið fram. Og verði lækkunin á tillagi ríkissjóðs til þess, að aldrei verði ráðist í fyrirtækið, kemur arðurinn heldur aldrei.
Till. frá hæstv. fjmrh. hvetur til varúðar um þetta mál. Er gott, að full varúð sje viðhöfð, og get jeg verið þakklátur fyrir það. Till. sýnir ábyrgðartilfinningu hæstv. ráðh. í fjármálum, sem er mjög nauðsynleg hjá öllum, er við landsmál fást, en einkum manni í hans stöðu. En máske verður hún frekar til að draga úr framkvæmd verksins, einkum ef till. hv. sjútvn. nær fram að ganga.
Þá þótti mjer það einkennilegt, þegar hv. frsm. klykti út sína ræðu með því, að mín ræða hefði styrkt skoðun sjútvn. Jeg held, að hv. þm. hafi þar alveg hausavíxl á rökunum. Mín rök sýna, að framkvæmd fyrirtækisins er í hættu, ef till. sjútvn. hafa framgang óbreyttar. Ástæður mínar eru kröftug andmæli gegn því, að dregið verði úr tillaginu, svo sem hv. sjútvn. vill.
Þá talaði hv. þm. um, að hafnargerðin væri ekki ódýr. Vitanlega kostar hún mikið. En miðað við það, sem hafnargerðir kosta annarsstaðar, má segja, að Skagaströnd sje fremur ódýr staður. Þar hagar vel til. Að norðan er stór höfði, sem skýlir víkinni, sem höfnin verður í, og veitir mikla hjálp. Þegar garður hefir verið gerður að vestan, er lítið eftir ógert, því lítil hætta er frá suðri og suðvestri. Það er að vísu rjett, að ef útgerðin vex mikið, þá er gott að geta stækkað höfnina. Er það líka hægt með því að gera garð að austan, móti þessum, sem fyrst verður gerður. En þó það sje ekki gert, verða mikil not af höfninni. Þarf hún varla stærri að vera í náinni framtíð.