03.04.1929
Efri deild: 35. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2591 í B-deild Alþingistíðinda. (1326)
27. mál, bæjarstjórn í Hafnarfirði
Forseti (GÓ):
Mjer finst hv. þm. sýna óþarfa þrákelkni í þessu máli. Það er alveg rjett, að þetta kemur í bága við þau lög, sem við búumst við að samþ. Jeg tek því málið út af dagskrá. En jeg býst við, að það komi fyrir á morgun, og vona jeg, að það geri ekki málinu neinn skaða.