04.04.1929
Efri deild: 36. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2592 í B-deild Alþingistíðinda. (1329)

27. mál, bæjarstjórn í Hafnarfirði

Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Jeg vil ekki greiða atkv. með brtt. á þskj. 253 fyr en deildin hefir tekið afstöðu til frv., sem brtt. eiga við. Jeg vil því leggja til, að frv. gangi til Nd., sem þá getur gert breyt. á því, enda er venjan að taka fyrst tillit til breyt. á löggjöfinni, sem samþ. hafa verið af þinginu, en ekki þeirra, sem aðeins eru í undirbúningi.