10.05.1929
Neðri deild: 65. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2654 í B-deild Alþingistíðinda. (1421)

116. mál, lækningaleyfi

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

N. er öll sammála um að leggja það til, að frv. þetta verði samþ. óbreytt. Það gengur út á að flýta skýrslum lækna, og þó að n. þyki tíminn, sem læknunum er ætlaður til skýrslugerða þessara, heldur knappur, þá sjer hún þó ekki ástæðu til að koma með brtt. við frv., og leggur því til, að það verði samþ. óbreytt.