21.02.1929
Neðri deild: 4. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2699 í B-deild Alþingistíðinda. (1499)

18. mál, fjáraukalög 1927

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Í frv. þetta eru teknar þær fjárhæðir, er yfirskoðunarmenn hafa talið rjett að fá aukafjárveitingu fyrir. Að öðru leyti vísast til landsreikningsins, og verður honum útbýtt hjer í deildinni von bráðar. Legg jeg til, að frv. verði vísað til fjhn. að þessari umr. lokinni.