16.05.1929
Efri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2716 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)

19. mál, landsreikningar 1927

Frsm. (Jón Baldvinsson):

N. hefir athugað frv. og borið saman við landsreikninginn. Að vísu hefir ekkert nýtt komið þar fram, en rjett er að láta þess getið, að ekki liggja fyllilegar upplýsingar fyrir um 29. liðinn. Hefir ekki verið gerð full grein fyrir þeirri upphæð, er þar um ræðir; hafa og endurskoðunarmenn LR. bent á þetta. Jeg hefi viljað láta þess getið, að n. hefir athugað þetta, en að öðru leyti leggur n. til, að frv. verði samþ.