16.05.1929
Efri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2717 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)

19. mál, landsreikningar 1927

Fjmrh. (Einar Árnason):

Hvað mig snertir, þá hefi jeg ekki enn tekið afstöðu til þessa atriðis í reikningum Landsbankans. Jeg geri ráð fyrir, að þetta komi til kasta landsbankanefndarinnar nú um þessar mundir, og jeg get ekkert sagt um það fyrirfram, hvernig hún kann að líta á þetta. Jeg er heldur ekki við því búinn að gefa neinar upplýsingar um, hvernig jeg muni snúast við þessu, þegar reikningurinn kemur til mín.