04.04.1929
Neðri deild: 36. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2718 í B-deild Alþingistíðinda. (1549)

111. mál, brunamál

Flm. (Halldór Stefánsson):

Jeg þykist hafa gert nægilega grein fyrir ástæðunum fyrir flutningi þessa frv. í grg., og vísa til þess, sem þar er fram tekið. Sje jeg ekki ástæðu til þess, hvorki að endurtaka það eða fjölyrða um málið. Vil jeg svo leyfa mjer að óska þess, að málinu verði, að þessari umr. lokinni, vísað til 2. umr. og fjhn.