17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2773 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)

115. mál, íbúð í kjöllurum

Magnús Guðmundsson:

Jeg skrifaði undir þetta nál. með fyrirvara, en það gerði jeg sökum þess, að jeg er í efa um, að rjett sje að banna alveg kjallaraíbúðir í nýjum húsum, ef þær eru ekki niðurgrafnar og ef enginn slagi er þar. Þótt jeg hafi skrifað undir með þessum fyrirvara, er jeg þó fylgjandi frv., því að það er til bóta frá því, sem áður var.