18.04.1929
Efri deild: 48. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2862 í B-deild Alþingistíðinda. (1738)
123. mál, ráðstafanir vegna alþingishátíðarinnar 1930
Jón Þorláksson:
Við höfum ekki fundið ástæðu til að koma með sjerstakt nál., jeg og hv. 1. þm. G.-K., en erum ekki mótfallnir heimildinni í I. lið frv., um að gefa þessum minnispeningum peningagildi.
Að því er snertir II. og III. lið frv., þá sjáum við ekki annað en að alþingishátíðarnefndin geti trygt það með samningum, að hún fái nægileg farartæki og húsnæði fyrir sína gesti, og í öðru lagi álítum við það best, að ekki sjeu lagðar neinar kvaðir á þá menn, sem hafa hús og flutningatæki til umráða. Jeg fyrir mitt leyti álít það blett á hátíðinni, ef forstöðumennirnir fara að beita kúgun og þvingunarráðstöfunum, sem ekki er beitt í siðaðra manna ríkjum nú orðið nema þegar ófriður er.