11.04.1929
Efri deild: 42. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2889 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)
12. mál, loftferðir
Frsm. (Páll Hermannsson):
Jeg vil aðeins benda á það, að brtt. á þskj. 315 var ekki útbýtt hjer í d. fyr en í dag, í byrjun þessa fundar, svo að hvorki n., sem hefir þetta til meðferðar, nje hv. þdm. hafa haft tíma eða næði til þess að virða þær fyrir sjer. Þar sem nú þessar till. fela í sjer miklar breyt., þá finst mjer nauðsynlegt, að þær sjeu íhugaðar rækilega. Jeg ætla því að leyfa mjer fyrir hönd n. að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki málið út af dagskrá, svo að tími vinnist til þess fyrir n. og hv. þdm. að skapa sjer skoðanir um þessar brtt.