17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3145 í B-deild Alþingistíðinda. (2012)
4. mál, rekstur verksmiðju til bræðslu síldar
Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):
Hv. þm. Vestm. og hv. þm. Barð. hafa undanfarið sent mjer tóninn út af þessu máli, þó að undarlegt sje, eins og því er nú komið. Mjer skilst, að þetta hnútukast sje tilraun til þess að vekja nýjar deilur og langvarandi umr. og úlfúð um málið. Jeg hafði alls ekki vikið neinu að þessum hv. þm., heldur aðeins talað um málið sjálft, svo takmarkað sem mjer var unt. Þess vegna er mjer það ljóst, að framkoma þessara hv. þm. er ekki sprottin af neinu öðru en hneigð þeirra til þess að tefja fyrir málinu og spilla því, að það verði útkljáð á þessu þingi. Það er bert, að ef ekki tekst að afgreiða frv. óbreytt nú við þessa umr., þá verður afleiðingin sú, að málið fer í sameinað þing, og þá þarf 2/3 greiddra atkv. til þess að gera það að lögum. Jeg verð því að álfta, að ætlun þeirra sje einungis sú, að granda málinu: þetta er hreint og beint sú eina skýring, sem hægt er að gefa á framkomu þessara hv. þm.
Jeg tek mjer það ekki nærri, þó að þeir sjeu að bregða mjer um hollustu við sósíalista. En þó get jeg tekið það fram, að gefnu tilefni, að jeg mun vera einn meðal þeirra þm. í mínum flokki, sem ekki er vanur að kasta hnútum að öðrum út af því, þó að þeir sjeu í öðrum flokki, hvort heldur sem um er að ræða jafnaðarmenn eða íhaldsmenn. Jeg tel mjer skylt að styðja góð málefni, hvaðan sem þau koma eða frá hvaða flokki sem þau eru runnin. Þessi aðdróttun í minn garð, um að jeg sje á valdi sósíalista, er því einkennilegri, þar sem jeg mun flestum öðrum fremur í mínum flokki hafa rekist á þá og þeirra kröfur.
Þá er undarlegt að vera að brigsla mjer um, að verið sje að eyðileggja frv. um fiskiveiðasjóð Íslands í Ed.; þvílík fjarstæða, að álíta, að jeg geti haft áhrif á gang mála þar. Það getur ekki annað legið á bak við þessa ádeilu til mín en að jeg vilji spilla fyrir því, að þetta mál komist fram og teygja það út á hálkuna. En jeg hefi svo mikið að málinu unnið, að slík ásökun er fjarri öllum sanni. Jeg ætla ekki að deila um einstök atriði í því frv., sem hjer liggur fyrir: jeg veit, að það er engin von til þess að fá því framgengt á þessu þingi, ef það verður ekki samþ. óbreytt eins og það er nú. Og þá er vissulega stefnt í voða, þar sem miklu fje hefir verið kostað til undirbúnings verksmiðjubyggingunni, og búast má við, að síldarútvegurinn kunni að stöðvast, að meira eða minna leyti, ef verkssmiðjan kemst ekki upp.
Hv. 3. þm. Reykv. talaði af sanngirni og hreinskilni um þetta mál: hann taldi ekki svo mikla galla á frv., að ástæða væri til að stöðva það. Fyrir þetta vil jeg votta honum maklega viðurkenningu, þó að hann sje ekki samflokksmaður minn.
Nú hefi jeg lokið mínu máli og ætla að lofa þeim hv. Vestm. og þm. Barð. að halda áfram málþófinu óáreittum. Jeg ætla ekki að svara þeim oftar, nema þeir beri á mig þær sakir, að mjer þyki ástæða til að láta dómstólana skera úr þeim.