04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3402 í B-deild Alþingistíðinda. (2104)
37. mál, verkamannabústaðir
Pjetur Ottesen:
Það er ekki rjett, að þessar brtt. hafi ekki verið ræddar hjer við 2. umr. Hv. flm. þeirra reifaði þær og jeg vjek nokkuð að þeim í ræðu. Jeg held því fastlega fram, að úr því að brtt. standa á dagskránni, hafi forseti ekki vitað um, að þær hafi verið teknar aftur, og krefst þess því, að brtt. sjeu bornar undir atkv.