04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3406 í B-deild Alþingistíðinda. (2118)

37. mál, verkamannabústaðir

Pjetur Ottesen:

Jeg hefi engan heyrt minnast á það í umr. hjer í dag, að þessar brtt. væru aftur teknar. Jeg hefi í mínum ræðum talað um þessar till. jafnframt frv., og sama hafa aðrir dm. gert, og beinlínis gengið út frá því, að þær kæmu hjer til atkv. við þessa umr., eins og aðrar till. og gr. þessa máls. Þessi aðferð, sem hjer er viðhöfð, er gersamlega óþingleg.