19.02.1929
Neðri deild: 2. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (2200)

Kosning fastanefnda

Kosnir voru í nefndirnar:

2. Fjárhagsnefnd.

Halldór Stefánsson: Samkv. þingsköpum ber að kjósa 5 menn í fjárhagsnefnd, en venjulegast hefir þó tveimur mönnum verið bætt við, svo nefndina hafa skipað sjö menn. Og þar sem gera má ráð fyrir því, að störf þessarar nefndar verði engu síður víðtæk og vandasöm nú en áður hefir verið, þá leyfi jeg mjer að gera að tillögu minni, að leitað verði afbrigða um, að kosnir verði nú þegar 7 menn í fjárhagsnefnd.