18.05.1929
Efri deild: 76. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3498 í B-deild Alþingistíðinda. (2232)

Starfslok deilda

forseti (GÓ):

Þá er nú störfum hv. efri deildar Alþingis lokið að þessu sinni, og vil jeg áður en jeg slít þessum 76. fundi deildarinnar, þakka öllum hv. deildarmönnum röggsamlega afgreiðslu mála á þinginu og kurteisa og eftirbreytnisverða framkomu á fundum deildarinnar.

Þótt starfstími þessa þings sje að ýmsra dómi orðinn fulllangur, borinn saman við störf þingsins, mun þjóðin, er hún kynnir sjer Alþingistíðindin á sínum tíma, sannfærast um, að þessi hv. deild á enga sök á því. Hefir hin ágæta framkoma deildarmanna og góð samvinna við þá gert mjer forsetastörfin auðunnin og ánœgjuleg.

Óska jeg svo hv. þm. utan af landi góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu, og hæstv. stj. og öllum þdm. allra virkta nú og framvegis og að vjer megum allir hittast heilir á næsta þingi.