18.05.1929
Neðri deild: 73. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3500 í B-deild Alþingistíðinda. (2237)

Starfslok deilda

Sveinn Ólafsson:

Jeg vildi leyfa mjer fyrir mína hönd og þeirra, sem undir það vilja taka með mjer, að þakka hæstv. forseta fyrir röggsamlega fundarstjórn og rökvíslega úrskurði. Jeg skal viðurkenna það hiklaust, að hann hefir sýnt alveg sjerstaka nærgætni í sinni fundarstjórn, en að vísu verið nokkuð vinnuharður við okkur síðustu dagana, og held jeg, að honum verði að fyrirgefast það. En jeg kann honum bestu þakkir fyrir fundarstjórn og alla samvinnu í vetur, og vildi jeg mælast til þess, að þingbræður mínir vildu votta honum þakklæti sitt með því að rísa úr sætum.

Allir þdm. risu úr sætum sínum.