12.03.1929
Efri deild: 20. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í C-deild Alþingistíðinda. (2580)

60. mál, einkasala á lyfjum

Halldór Steinsson:

Mjer þykir leitt að heyra, ef afstaða landlæknis er óbreytt síðan 1921 þrátt fyrir þær breytingar, er á hafa orðið. Annars leyfi jeg mjer að efast um, að hv. þm. fari rjett með orð landlæknis. Mín afstaða í þessu máli er gerbreytt síðan 1921, og þótt jeg leggi mikið upp úr orðum landlæknis í ýmsum málum, get jeg ekki átt samleið með honum í þetta sinn, svo framarlega sem hv. þm. hefir hermt orð hans rjett.