06.04.1929
Efri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í C-deild Alþingistíðinda. (2615)
43. mál, raforkuveitur utan kaupstaða
Fjmrh. (Einar Árnason):
Aðeins örfá orð út af fyrirspurn hv. 6. landsk. Eftir niðurlaginu í nál. hv. meiri hl. fjhn. virðist mjer að ætlast sje til, að stjórnin láti fara fram rannsókn á því, hve mikið fje muni þurfa til þess að koma upp raforkuveitum fyrir alt landið. Slík rannsókn myndi áreiðanlega taka mikinn tíma og þar af leiðandi verða mjög dýr. Jeg býst því við, að stjórnin treysti sjer ekki til að láta framkvæma hana, nema þá því aðeins, að þingið veiti sjerstakt fje í því skyni. Aftur á móti er stjórnin fús til þess, að láta gera lauslegar athuganir á helstu stöðunum, ef það er hægt án mikils kostnaðar.
Mjer skildist, að hv. 6. landsk. hefði stungið upp á annari leið í þessu máli, sem sje þeirri, að stjórnin legði til menn og dálítið framlag, ef einhver hjeruð óskuðu eftir, að rannsakaðir væru hjá þeim staðhættir og aðrir möguleikar til raforkuveitu, þó gegn því, að hjeruðin sjálf legðu fram helming kostnaðarins. Við þessa till. hefi jeg ekkert að athuga og geri ráð fyrir, að ekki þurfi að gera neinar sjerstakar ráðstafanir til þess að heimila stjórninni fje til þessara hluta, ef ekki á að aðhafast meira en þessi till. gerir ráð fyrir. En hinsvegar gæti jeg hugsað mjer, að það þætti lítil úrlausn á þessu máli, ef ekkert annað verður gert.