10.05.1929
Neðri deild: 65. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í C-deild Alþingistíðinda. (2662)

42. mál, Fiskiveiðasjóður Íslands

Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):

Jeg vildi leyfa mjer að minna á það, að við 2. umr. þessa máls var tekin aftur brtt. á þskj. 347, frá sjútvn., og frestað til 3. umr. — En það mun hafa gleymst að taka hana upp að nýju. Vil jeg því gera það nú. Hinsvegar legg jeg það á vald hæstv. fors., hvort koma á fram með skriflega brtt., eða hvort hin prentaða á þskj. 347 getur gilt eins og hún er. Að öðru leyti mun jeg ekki minnast á frv. að þessu sinni frekar. Ekki heldur á þær brtt., sem fyrir liggja, fyr en þá máske er jeg hefi heyrt mælt fyrir þeim.