20.02.1929
Neðri deild: 3. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í C-deild Alþingistíðinda. (2733)
20. mál, atvinna við siglingar
Magnús Torfason:
Það þýðir ekki að deila um þetta mál við þessa umr. Og jeg býst við því, að nefndin muni athuga, hvað best hentar í þessu efni. Jeg skal játa það, að þetta frv. gladdi mig mikið, vegna þeirrar reynslu, sem jeg hefi fengið í sjódómsmálum á undanförnum árum. Því verður ekki neitað, að eftirtekt háseta á því, sem gerist í sjóróðri, hefir stórum hnignað. Jeg tók eftir því á þessum 17 árum, sem jeg var á Ísafirði, að þessu var á alt annan veg farið fyrst en síðast. Það var eins og eftirtektin minkaði, er menn komust á vjelbátana. Menn vissu ekki einu sinni á hvaða miði þeir höfðu verið, eða hve lengi á leiðinni.
Jeg tel það því æskilegt og til góðs, að jafnan sje á hverjum bát einhver maður, auk formannsins, sem hefir þá skyldu, að taka eftir því, sem við ber, og getur tekið við stjórninni, ef formaðurinn forfallast eitthvað. Það er óttalegt að hugsa til þess, að enginn af heilli skipshöfn sje fær um að leysa formanninn af hólmi, ef eitthvað verður á um hann. Jeg endurtek það þess vegna, að jeg er þakklátur fyrir, að þetta frv. skyldi koma fram.