09.03.1929
Efri deild: 18. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 811 í C-deild Alþingistíðinda. (2758)

6. mál, hveraorka

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg býst við, að það sje rjettast út af því atriði í frv., sem hv. 3. landsk. (JÞ) mintist á, að það sje aftur tekið til athugunar í nefnd til 3. umr., og mætti þá fresta frekari umræðum um það að sinni. Annars skal jeg geta þess, að þetta frv. er fram komið samkv. till. frá Nd. Alþingis 1927, og undirbúið og samið af Klemens Jónssyni í samráði við verkfræðinga.