09.03.1929
Efri deild: 18. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í C-deild Alþingistíðinda. (2760)
6. mál, hveraorka
Jón Þorláksson:
Jeg get ekki annað sagt en að jeg sje ánægður með undirtektir hv. frsm. nefndarinnar og skilning hans á frv. Hv. frsm. les alt það út úr frv., sem jeg tel rjett, að það feli í sjer. En jeg vil þó benda hv. nefnd á það til athugunar, að jeg teldi betur fara, að orðið „jarðhiti“ í svigum í 1. gr. falli niður.
Í öðru lagi vil jeg leiða athygli nefndarinnar að því, að mjer finst, að eftir skilningi hv. frsm., ætti að breyta orðalagi í 3. málslið 12. greinar þannig, að fyrir orðið forgöngurjettur komi aðeins rjettur. Forgöngurjett mætti skilja svo, að leyfishafi gengi aðeins fyrir öðrum um kjör og kosti af hálfu landeiganda. Orðið felur það í sjer, að fleiri geti komist þar að en hann. En jeg hygg, að það hafi verið meining þess, sem samdi frv., að borunarmaður ætti að eignast þá orku, sem hann framleiðir með boruninni; enda virtist mjer frsm. vilja skilja það á sama hátt. Jeg er ánægður með, að það sje á valdi stjórnarinnar, að þeir, sem leita eftir hitaorku í þágu almennings — sveita eða kaupstaða — fái fyrst og fremst þetta leyfi, og að trygður sje rjettur þeirra.