19.03.1929
Neðri deild: 26. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í C-deild Alþingistíðinda. (2781)

6. mál, hveraorka

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Það gladdi mig stórlega, að hv. 1. þm. Skagf. kallar frv. hverarán. Þó að jeg sje ekki kunnugur heimilisástæðum í hans flokki, þá sjest þó á þessu, að það er ekki allur Íhaldsflokkurinn, sem stendur þarna að baki þeirri mjög svo hræðilegu árás á eignarrjettinn, sem kom fram í ræðu formanns þess flokks við umr. um þetta mál í Ed.