09.04.1929
Efri deild: 40. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í C-deild Alþingistíðinda. (2827)

26. mál, kvikmyndir og kvikmyndahús

Frsm. meiri hl. (Jón Jónsson):

Jeg felst alveg á brtt. þær, er fram eru komnar frá hæstv. fjmrh. í aðra þeirra er einmitt það sama tekið upp, sem jeg hreyfði hjer við 2. umr., að óþarfi vœri að hafa myndskoðunarmenn svo marga, sem ætlað er í frv.

Út af áliti hv. 4. landsk. skal jeg taka það fram, að jeg hefi skilið frv. eins og hann, að öll eldri leyfi fjellu úr gildi með því.