02.03.1929
Neðri deild: 12. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í C-deild Alþingistíðinda. (2954)

48. mál, vegalög

Sigurður Eggerz:

Jeg vil aðeins láta þess getið, að jeg mun koma með brtt. um, að svonefndur Laxárdalsvegur í Dalasýslu verði tekinn upp í vegalögin. Skal jeg eigi lýsa nauðsyn þess máls nú, en mun gera það um leið og brtt. kemur fram.

Jeg vil aðeins vekja athygli á því, að Dalasýsla, sem er eitt mesta landbúnaðarhjerað landsins, hefir hingað til orðið mjög útundan um fjárveitingar til vegalagninga. Vænti jeg, að hv. þdm. viðurkenni rjettmæti þessarar till.; jeg gerði grein fyrir því í fyrra. Mun jeg bera hana fram síðar í sambandi við þetta mál.