04.03.1929
Neðri deild: 13. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í C-deild Alþingistíðinda. (2967)
52. mál, útsvör
Flm. (Einar Jónsson):
Það er nú búið að minnast svo mikið á vesalings oddvitana, að vert er að taka störf þeirra betur til greina.
Allmargir hreppsnefndaroddvitar hafa komist að raun um það, að ýms atriði, er þeim ber að inna af hendi, eru erfið til framkvæmda, er fara skal eftir ákvæðum laga um útsvör frá 1926.
Þótti þar nokkuð við bregða, er reikningsárinu var breytt úr fardagaári í almanaksár, og hafa margir kunnað því illa fram að þessu. Tel jeg það líklegt, að þetta komist upp í vana, og óánægja út af því atriði smáhverfi, enda eðlilegt, að þar gildi sömu ákvæði fyrir landið í heild. Við flm. förum því ekki fram á breytingu reikningsársins. Á síðasta þingi var gerð tilraun til þess í Ed. að fá reikningsárinu breytt í fardagaár, en sú breyting fjekk ekki byr.
Á þingmálafundum í Rangárvallasýslu komu einkum fram óskir um tvær breytingar á útsvarslögunum. Önnur óskin gekk í þá átt, að fyrri gjalddaginn, sem nú er 15. júlí, yrði færður fram og ákveðinn 15. maí. En auðsætt er, að eftir ákvæðum útsvarslaganna gæti svo farið, að niðurjöfnun væri þá ekki lokið og tókum við því það ráð, að ákveða gjalddagann 15. júní í frv. Manntalsþing er haldið eftir þann tíma, og væri því oddvitum gert hægra um vik að standa skil á fje þar, en eins og kunnugt er, eiga þeir að inna þar allmiklar greiðslur af höndum. Þetta þykist jeg vita að hv. þdm. muni skilja.
Hin breytingin, sem við förum fram á, er viðbót við 28. gr. og fer í þá átt, að húsbændur skuli bera ábyrgð á útsvörum hjúa sinna. Þetta er nýtt ákvæði, sem nauðsynlegt er að komist inn í lögin, vegna þess að sú hefir orðið raunin á, að illmögulegt hefir oft orðið að innheimta útsvör þeirra manna, sem oft skifta um dvalarstað eftir atvinnu, en hinsvegar auðvelt fyrir húsbónda að halda útsvarsupphæðinni eftir af umsömdu kaupi. Þetta mundi stórum ljetta innheimtuna, og þessari aðferð hefir verið beitt við innheimtur á ýmsum öðrum gjöldum svo sem sóknargjaldi, ellistyrktarsjóðsgjaldi, tekjuskatti o. fl. Jafnvel útsvör, sem lögð hafa verið á menn í verstöðvum og á togurum, hafa verið innheimt á þennan hátt. Finst mjer sjálfsagt, að þetta verði gert að reglu um land alt. Þykist jeg vita, að öllum sje þetta svo augljóst, að óþarfi sje að skýra það nánar og lýk því þessum fáu orðum með þeirri ósk, að málinu verði að lokinni umræðu vísu til 2. umr. og allshn.