02.04.1929
Neðri deild: 34. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í C-deild Alþingistíðinda. (2995)
59. mál, ófriðun sels í Ölfusá
Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
Jeg get í þessu máli að mestu skírskotað til nál., sem er að finna á þskj. 226. Landbn. hefir athugað frv. og lagt til, að það yrði samþ. með nokkrum breytingum. Aðalbreytingin er við 2. gr. frv. og er fólgin í því, að í stað þess að frv. gerir ráð fyrir því, að hálfar bætur fyrir missi selveiðinytja greiðist úr ríkissjóði, þá fer brtt. n. fram á það, að þessar bætur greiðist að öllu leyti af laxveiðieigendum eða leigjendum. Eftir atvikuni getum við flm. fallist á þessa tillögu. Þá er og bætt við einum eða tveimur málsliðum, sem af óaðgæslu höfðu fallið úr frv. og frv. þar með sett í sama horf og það var í á síðasta Alþingi. Næsta brtt., við 3. gr., leiðir af áðurnefndum brtt.
Þá er síðasta brtt. n., að í stað þess að 3 þeirra manna, er bætur eiga að greiða, geti gert kröfu um mat á arði af laxveiðiaukningu, eins og er í frv., komi 10. Þykir nefndinni fullauðvelt um heimting á yfirmati, ef aðeins 3 menn geta heimtað það. En þarna er um marga menn að ræða, sem á einhvern hátt hafa rjett til laxveiða, og telur því 10 ekki of hátt sett. — Vona jeg að hv. deild fallist á frv., einkum þar sem brtt. n. leiða til þess, að útgjöld ríkissjóðs hverfa svo að segja með öllu, og þau litlu, sem verða, hverfa eftir tiltölulega skamman tíma. Vona jeg því, að ekki verði neinn ágreiningur í hv. deild um þetta frv.