17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1608 í C-deild Alþingistíðinda. (3185)

98. mál, hafnargerð á Sauðárkróki

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Jeg skal ekki tefja fyrir að aðrir hv. þm. komist að, en vil lýsa yfir því, fyrir nefndarinnar hönd, að hún leggur til, að frv. verði samþ., en ágreiningur hefir orðið um það, hvað tillag ríkissjóðs ætti að vera mikið, en þeir hv. þm., sem sjerstöðu höfðu í málinu, munu gera grein fyrir skoðun sinni.