09.04.1929
Neðri deild: 40. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1709 í C-deild Alþingistíðinda. (3253)

117. mál, skipun barnakennara og laun

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Sökum þess, að fundartíminn er nú orðinn svo áliðinn, sje jeg ekki ástæðu til að lengja frekar umræðurnar, og vil því einungis vísa til greinargerðarinnar, sem fylgir frv. Það, sem jeg kann að hafa að bæta við, get jeg komið fram með við 2. umr. málsins, en vil leggja til að endingu, að frv. verði vísað til fjhn.