17.05.1929
Efri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í C-deild Alþingistíðinda. (3281)
117. mál, skipun barnakennara og laun
Ingibjörg H. Bjarnason:
Jeg gat þess í gær, að jeg greiddi ekki atkv. um þetta mál. Jeg get tekið undir með hv. 4. landsk., að fleiri koma hjer til greina í þessari stjett, en þeir, sem kennarapróf hafa tekið. Jeg get því ekki sjeð næga ástæðu til þess að breyta launum þessarar stjettar sjerstaklega, meðan ekki er útsjeð um hver verða úrslit annars máls, sem deildin hefir nú til meðferðar, nefnilega launahækkunar ljósmæðra. Annars vil jeg ekki verða til þess að fella málið með mínu atkvæði, ef svo glögt stendur um úrslit þess.