16.03.1929
Efri deild: 24. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1864 í C-deild Alþingistíðinda. (3439)

71. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.

Flm. (Jón Baldvinsson):

Þetta frv. var afgreitt frá þessari hv. deild í fyrra í svipuðu formi og það liggur fyrir nú. Jeg sje því ekki ástæðu til að fjölyrða um frv. að þessu sinni, en vísa til þess, sem jeg sagði í fyrra. Jeg vænti þess, að frv. verði vísað til allshn., að þessari umr. lokinni.