07.03.1929
Efri deild: 16. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (3544)

9. mál, kaup á áhöldum til þess að bora með eftir heitu vatni

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil skírskota til grg. fyrir þessari till., svo og þess, að till. hefir verið til athugunar í hv. Nd. og verið samþ. þar einróma bæði af þeirri hv. n.. sem hafði hana til meðferðar, og af hv. d. Vil jeg aðeins mælast til þess, að þessi hv. d. taki till. vel og að henni verði að lokinni umr. vísað til hv. fjvn.