03.04.1929
Neðri deild: 35. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í D-deild Alþingistíðinda. (3589)
41. mál, aukin landhelgisgæsla
Sigurjón Á. Ólafsson:
Jeg hvíslaði því að hv. þm. Barð., hvort hann vildi ekki taka till. sína aftur. Nú vil jeg í heyranda hljóði ítreka þessa áskorun til hv. þm. Mjer dettur vitanlega ekki í hug, að hv. þm. vilji með þessari till. skemma hina upprunalegu till. okkar, en í rauninni verður það niðurstaðan. Það er erfiðara að fá aukna gæslu á Faxaflóa, ef um leið er heimtuð aukin gæsla á mörgum öðrum miðum, sem liggja svo langt fjarri Faxaflóamiðum, að ógerlegt er fyrir sama gæslubátinn að annast það. Það hefir verið bent á, að ríkisstj. hafi að undanförnu haldið úti vjelbáti til eftirlits meðfram Vestfjörðum, þegar þörfin hefir verið brýnust, og jeg veit ekki betur en að sú gæsla hafi komið að fullum notum. (HK: Líka á Faxaflóa). Nei, gæslan á Faxaflóa hefir ekki komið að fullu haldi, vegna þess að vörslusvæðið er svo víðáttumikið og ásækni togaranna að sama skapi mikil. Svo ber og á það að líta, að á Vestfjörðum leita togararnir inn á firðina einkum og aðallega seinni hluta sumars og á haustin; auk þess er botn víða svo grýttur, að togurum er lítt mögulegt að toga, t. d. á Breiðafirði. Helst er það í ágúst, sept., október og fram í nóvember, að togararnir leita inn á firðina, og reynslan hefir sýnt, að varðbáturinn, sem gæsluna hefir haft fyrir Vestfjörðum, hefir getað varnað því hingað til, að togararnir hefðust við inni á fjörðunum. Jeg hefi í þessu efni fyrir mjer ummæli margra manna, bæði af Arnarfirði og Patreksfirði. Jeg efast ekki um það, að hæstv. stj. muni nú sem fyr halda úti báti til strandgæslu fyrir Vestfjörðum, og þess vegna er síst ástæða til að bera fram slíka till., sem hjer er á ferðum.
Hvað a-lið brtt. snertir, þá er þar sennilega átt við Ólafsvíkurmiðin. Að vísu er þörf aukinnar gæslu þar um vissan tíma árs, enda hefir verið byrjað á því að halda úti báti þar, en það er ekki nema um vissan tíma árs, sem togararnir sækja á þau mið, einkanlega á haustin og fyrri hluta vetrar við Öndverðanes. Á Breiðafirði er yfirleitt togað fremur lítið í landhelgi, þegar Ólafsvíkurmiðin eru undanskilin. Ef sami báturinn á að gæta landhelginnar á innanverðum Faxaflóa og um leið vestur fyrir Snæfellsnes, vestur á Ólafsvíkurmið, þá yrði sú gæsla kák eitt. Það er nóg verkefni fyrir einn bát að annast gæsluna á innanverðum Faxaflóa, og ef sú gæsla á að koma að nokkru haldi, verður hann að geta gefið sig að því óskiftur. Það er ekki sambærilegt að tala um Faxaflóa og flest önnur mið, því að Faxaflói er einskonar klakstöð, enda mjög eftirsóttur fiskur þaðan af útlendum og innlendum togurum. Veldur því bæði, að botninn er víða góður og auk þess hafa miðin betri fisk að bjóða en flest önnur mið. Næst Faxaflóamiðunum ganga Ólafsvíkurmiðin; þar fæst oft koli, og enda eru miðin mjög eftirsótt um ísfiskstímann. Það er að vísu rjett hjá hv. 1. þm. N.-M., að á Faxaflóa er mikil skipaumferð, en það stoðar ekkert, því bæði er, að þau skip, sem um flóann sigla, hafa ekkert með gæslu að gera, og svo líka það, að togararnir hafa ekki ljós þegar þeir eru að toga í landhelgi. Þeir eru veiðiþjófar, sem fela sig í myrkrinu og hafa engin merki, sem gefa til kynna, að þeir sjeu á ferð. Botnlagið er víða gott á innanverðum flóanum, einkum þó á smábátamiðunum. Þykir togurunum sjerstakur fengur í að toga þar, enda sækjast þeir mjög eftir því. Kemur það sjer mjög bagalega fyrir hinn vaxandi smábátaútveg, sem á alt undir þessum miðum, hvernig þau eru varin. Ef þessi till. okkar nær samþykki hv. deildar, er það um leið sönnun þess, að Alþingi vill vernda smábátaútveginn, neta, færa- og lóðaveiðiskapinn, og ef þessi viðleitni Alþingis á að bera nokkurn árangur, veitir ekki af einum báti til að verja innanverðan Faxaflóa. Það hefir verið bent á, að hafa mætti stærri skip til gæslunnar, en jeg held, að það sje mjög hæpið, kostnaðarins vegna, að binda stór skip við ákveðin svæði. Jeg lít svo á, að þótt víða sje þörf meiri gæslu, þá sje hún hvergi svo brýn og hjer við Faxaflóa, og jeg get því varla skilið, að brtt. hv. þm. Barð. sje svo aðkallandi, að ástæða sje til þess að samþ. hana að svo stöddu, og síst í sambandi við okkar till., sem sjútvn. hefir fallist á í öllum aðalatriðum. Og jeg verð að telja það miður farið, ef till. hv. þm. Barð. nær samþykki, en annars geri jeg ráð fyrir, að stj. muni halda gæslu uppi fyrir Vestfjörðum áfram, eins og að undanförnu.
Jeg vil enn ítreka þau tilmæli mín, ef hv. þm. Barð. vill ekki bregða fæti fyrir þetta mál, að hann taki þá till. sína aftur. Undir þessum kringumstæðum og í þessu formi get jeg ekki annað en greitt atkv. gegn brtt., enda þótt jeg viðurkenni, að fullkomin þörf er á því, að gæslu sje haldið uppi á þeim slóðum, er brtt. bendir til.