08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í D-deild Alþingistíðinda. (3625)

30. mál, dýrtíðaruppbót

Pjetur Ottesen*):

*) Ræðuhandr. óyfirlesið. Jeg vil benda á, að það er ekki rjett, að hjer sje um enga hækkun að ræða. Samkv. löglegum útreikningum á dýrtíðaruppbótin að lækka úr 40% og í 34%. Hjer er því um 6% hækkun að ræða. Og útreikningarnir eru gerðir á sama hátt nú sem endranær.