08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í D-deild Alþingistíðinda. (3628)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það sýnir, hverja afgreiðslu á að hafa um málið, að hv. frsm. getur ekki einu sinni gefið svör við fyrirspurnum mínum, svo sjálfsagðar sem þær eru. Þetta er fráleit afgreiðsla og óforsvaranleg.