09.04.1929
Neðri deild: 40. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í B-deild Alþingistíðinda. (37)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Jeg er hræddur um, að hv. 2. þm. Rang. sje ekki farinn að átta sig á því, hvað felst í annari brtt. n. viðvíkjandi skilyrðunum fyrir bústofnslánum. Mjer skilst hann álíta, að ef tillaga n. yrði samþ., yrði þrengt að mönnum meira en gert er í frv. um að geta fengið bústofnslán. En jeg lít alt öðrum augum á það atriði. Eins og jeg tók fram þegar í framsöguræðu minni við 2. umr. og aftur áðan, enda er það ljóst tekið fram í frv., er það skilyrði fyrir lánunum, að vera meðlimur í fóðurbirgðafjelagi. En þau eru bara til 7 á landinu. Afleiðingin af því að láta þetta standa óbreytt er sú, að bústofnslánadeildin er lokuð fyrir allflestum landsmönnum. Úr þessu vildi n. bæta, eins og jeg hefi áður skýrt frá. Annars getur hv. 2. þm. Rang. bent á einhverja viðbótartryggingu í staðinn fyrir hreppsnefndarábyrgð. N. kom ekki auga á annað, án þess að hún vilji beinlínis einskorða sig við það, enda er tekið fram í brtt., að viðbótartrygging skuli vera hreppsábyrgð eða önnur trygging, sem bankastjórnin taki gilda. Ef lántakandi getur sett fasteign eða annað sem viðbótartryggingu, kemst hann hjá því að leita til sveitarstjórnarinnar.
Jeg get tekið undir það með hv. 2. þm. Rang., að það er leitt fyrir menn að þurfa að fara til hreppsnefndar og fá sveitarstjórnarábyrgð, en jeg er ekki viss um, að það sje leiðara en þó að fóðurbirgðafjelögin væru til og menn þyrftu að fá sameiginlega ábyrgð fjelagsmeðlima. Slík ábyrgð yrði áreiðanlega ekki látin með betra geði en hreppsábyrgðin.