18.05.1929
Efri deild: 74. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í D-deild Alþingistíðinda. (3754)

100. mál, rýmkun landhelginnar

Halldór Steinsson:

Þessi till. er að öllu leyti í samræmi við tillögur, sem áður hafa verið fluttar á Alþingi um þetta mál, og sem sjálfsagt er að flytja áfram, til að sýna skýlausan vilja Alþingis á að rýmka landhelgina. Jeg legg því eindregið til, að till. verði samþ.