15.03.1929
Neðri deild: 23. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í D-deild Alþingistíðinda. (3843)

34. mál, rannsókn á rekstri togaraútgerðarinnar

Sveinn Ólafsson:

Út af þeirri deilu, er hjer hefir risið um meðferð till., vil jeg leyfa mjer að benda á það, að þetta er ekkert sjávarútvegsmál og útkrefur enga sjerþekkingu á sjávarútvegi; miklu fremur er það lögfræðilegs efnis. Annars virðist mjer, að það, sem áður hefir verið tekið fram um vinnudómsmálið, ætti að vera nægilegt til þess, að bæði þessi mál færu til sömu n.