20.04.1929
Efri deild: 50. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (388)
127. mál, dómþinghár í Óspakseyrar- og Fellshreppum
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Eins og grg. ber með sjer, þá hefir allshn. flutt þetta frv. eftir beiðni sýslunefndarinnar í Strandasýslu. Annað samskonar frv. hefir verið flutt hjer í þinginu viðvíkjandi Barðastrandarsýslu. Allshn. sjer ekki ástæðu til annars en að verða við beiðni sýslunefndarinnar um þetta efni. Með því að frv. er flutt af nefnd, sje jeg ekki ástæðu til, að það sje látið ganga til n., og legg því til, að það sje afgr. til 2. umr.