10.04.1929
Efri deild: 41. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í B-deild Alþingistíðinda. (477)

74. mál, sektir

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Jeg hefi engu við að bæta það, sem sagt var við 1. umr. þessa máls. Það er flutt af allshn. og milli umr. hefir ekkert verið átt við málið. En jeg vil geta þess, að af ýmsum ástæðum væri æskilegt, að frv. væri hraðað. Jeg veit, að hv. dm. hafa gert sjer grein fyrir breyt. þeim, er frv. gerir á núgildandi löggjöf, því frá þeim var skýrt við 1. umr.