18.03.1929
Neðri deild: 25. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (537)

3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða

Sigurður Eggerz:

Jeg vil taka í sama strenginn og hv. 1. þm. Skagf. Jeg lagði áherslu á það við fyrri umr., að jeg vildi fá þessu breytt, og fjekk það góðar undirtektir. Jeg álít því æskilegt, að málið sje tekið út af dagskrá, svo að hægt sje að koma með brtt. í þessa átt.