20.03.1929
Neðri deild: 27. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í B-deild Alþingistíðinda. (553)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
0553Pjetur Ottesen:
Það er aðeins örstutt aths. við ræðu hv. þm. V.-Húnv. Hann varpaði fram þeirri spurningu, á hvaða grundvelli jeg áliti, að hlutfallskosningar ættu að byggjast. Nú er tvent til: að svar mitt hafi ekki verið nógu skýrt, eða þá að hv. þm. hefir misskilið mig. En svar mitt var þetta og það er ekki einungis mitt álit, heldur hefir líka sú skoðun verið ríkjandi á Alþingi undanfarið, , að ekki sje rjettur grundvöllur fyrir slíkar kosningar nema þar, sem föst og ákveðin flokkaskifting er komin á. Þetta á við um bæina, en alls ekki sveitirnar. í hreppsnefndum kann menn að greina á um það, hvort þetta árið eigi að leggja vegarspotta á einum eða öðrum stað, og annað þess háttar. Úr slíkum jarðvegi getur engin flokkaskifting sprottið. En ef aftur á móti væri farið að lögbjóða hlutfallskosningar í sveitunum, yrðu menn að hafa einhvern grundvöll til að byggja þær á, og þá er ekkert líklegra en að hinar pólitísku skoðanir kæmu til sögunnar og legðu þann grundvöll. Og jeg vænti þess, að flestum þætti miður heppilegt, ef löggjafarvaldið færi að gera þær ákvarðanir, sem beindu pólitíkinni inn í sveitarmálefnin.