27.04.1929
Efri deild: 55. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í B-deild Alþingistíðinda. (78)

14. mál, Búnaðarbanki Íslands

Jón Baldvinsson:

Jeg hafði fengið vitneskju um, að 7 fyrstu brtt. mínar á þskj. 410 mundu eiga nokkurt fylgi hjá einhverjum hv. dm., en í 8. till. felast einmitt hlunnindi þau, er veita á þeim, sem lán þessi fá, og þótti mjer því rjettara að taka þær aftur, vegna skýlausrar yfirlýsingar hæstv. forsrh., þó að jeg að sjálfsögðu greiði þeim atkv., ef einhver tekur þær upp.