17.05.1929
Efri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (891)

16. mál, fjárlög 1930

Jón Baldvinsson:

Jeg vil einungis leyfa mjer að spyrjast fyrir um það, hvað hv. fjvn. hefir um fjárl. að segja eftir afgreiðslu þeirra í hv. Nd. Jeg skildi það svo, að nál. væri á ferðinni, með því að eyða var á dagskránni fyrir þingskjölum í fjárlögunum. Jeg bjóst við, að von væri brtt. frá hv. fjvn.