17.05.1929
Efri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (892)

16. mál, fjárlög 1930

Jón Jónsson:

Jeg get gert grein fyrir því sem form. fjvn., að hún hefir ekki gert neinar brtt. við fjárl. að þessu sinni, og sje jeg því ekki ástæðu til að ræða þau nú. Jeg legg til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.