28.03.1930
Neðri deild: 65. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1249 í B-deild Alþingistíðinda. (1103)
14. mál, Menntaskólinn á Akureyri
Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):
Ég vildi helzt leggja til, að þetta mál yrði tekið út af dagskrá. Að vísu var því lýst yfir í gærkvöldi, að það myndi verða núna til umr., en þar sem ég bjóst ekki við því, hefi ég ekki búið mig undir framsögu, enda svo fáir hv. þdm. mættir, að tæpast er gerlegt að tala að svo stöddu fyrir máli.