02.04.1930
Neðri deild: 69. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 670 í C-deild Alþingistíðinda. (1204)
65. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Pétur Ottesen:
Einn hv. þdm. gerði fyrirspurn út af brtt. okkar hv. 2. þm. Skagf. Var hann að tala um, að hún stafaði af því, að við værum svo hræddir við að fara inn á nýjar brautir. Þetta er ekki rétt. En mismunandi frádrátt teljum við varhugaverðan. Og svo yrði þetta handahóf, svo að þannig gæti farið, að meiri frádráttur yrði í kaupstöðum, sem þó væri ódýrara að lifa í en kauptúnum, þar sem frádráttur væri minni. Þetta er nóg til að sýna, hversu þessi breyt. er óundirbyggð. Er því réttast að láta sömu reglur gilda og að undanförnu.
Hér er ekkert það til í löggjöfinni, sem bindur fólk við vissa staði. Og mér virðist fólk sækja nógu ört til kaupstaðanna, þó ekki sé undir það hlaðið eða ýtt með skattalöggjöfinni. eins og verið er að gera með þessu ákvæði frv.