01.03.1930
Neðri deild: 41. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í B-deild Alþingistíðinda. (1247)

19. mál, fræðslumálastjórn

1) Með svofelldri grg.:

Það er ekki skemmtilegt, að fundir séu háðir án dagskrár, og þar eð engin dagskrá liggur fyrir þessum fundi, þá vil ég vera laus við að greiða atkv. um mál, sem ég þekki ekki til, og efast ég um, að slíkt fundahald sé löglegt. Ég greiði því ekki atkv.